Tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsa við Miðholt á Þórshöfn

Á heimasíðu Langanesbyggðar er auglýst tillaga að deiliskipulagi:

- Íbúðarhús við Miðholt á Þórshöfn, Langanesbyggð -

Tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsa við Miðholt á Þórshöfn auglýsist hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn kl. 9:00-15:00 alla virka daga og í Skólagötu 5 á Bakkafirði frá kl. 10:00 til 14:00 alla virka daga frá 2. nóvember 2010 til 14. desember 2010.

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist sveitarstjóra Langanesbyggðar eigi síðar en kl. 16.00 þriðjudaginn 14. desember 2010.

Hægt verður að nálgast uppdrátt og greinargerð á heimasíðu Langanesbyggðar www.langanesbyggd.is frá og með 2. nóvember 2007.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Sveitarstjóri Langanesbyggðar