Print

Tillaga að hættumati fyrir skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði auglýsist hér með skv. 5. gr. reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats nr.  505/2000.

Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði, ásamt umhverfisskýrslu auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagssvæðið er u.þ.b. 773 ha að stærð og tekur yfir dalbotn Hólsdals og hliðardalinn Skarðsdal. Þar er skipulagt útivistarsvæði með skíðasvæði, golfvelli, skógrækt, knattspyrnusvæði, tjaldsvæði, frístundahúsum, þjónustureit o.fl. Forsendur skipulagsins er m.a. tillaga að snjóflóðahættumati fyrir svæðið sem er í kynningu.

 

Tillaga að hættumati, deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu verða til sýnis á skrifstofum Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði frá og með föstudeginum 21. október til og með föstudeginum 2. desember.

Gögnin verða einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins - www.fjallabyggd.is - tenglar hér að neðan

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skipulags- og umhverfisnefnd eigi síðar en kl. 16.00 föstudaginn 2. desember.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum.

Bæjarstjóri Fjallabyggðar

Tillaga að hættumati fyrir skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði

Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði